Obb bobb obb !!!!
|
Stærsta vandamál það sem af er þessa dags, er svitalyktareyðir með of mikilli lykt. Það er ekki hægt að segja annað en að maður hafi það helvíti gott.
|
Jæja, best að halda á... dugar ekki að dvelja við óyndið.
Öll él styttir upp um síðir og allt það.
Hér sé stuð!
|
...allt er í heiminum hverfult...
|
Já já, þetta er ágætt. Það er um að gera að reyna að vera jákvæður og kátur. Sólin skín og svona...
|
Today you may discover that you have more in common with your neighbors than you thought, Heiðrún. It is likely that some sort of local event has brought all your neighbors together under one roof. You go as an obligation, but stay out of interest and a genuine willingness to participate. There is nothing like rolling up ones sleeves and working together to tackle a common goal. Expect to make some good friends in the process....og ég sem er að fara að taka til í garðinum með nágrönnunum. Merkilegt!
|
Nú er Gunna á nýju skónum og í dag er ég Gunna.
Allt rólegt á vesturvígstöðvunum.
Þrifdagur í dag, jibbí!
Stuð.
|
Nýjasta nýtt hjá ÞS er að eignast akurhænu sem hún sá í dýrabúð í gær. Er að reyna að véla ömmu sína í að veita henni hæli af því að mamma hennar er svo vond og segist ekki vilja neina hænu inn á heimilið, nema til að éta...
|
Það var eitthvað tvennt sem ég lét fara óskaplega í taugarnar á mér í hálf átta fréttunum í morgun. Ég skammaðist og bölvaði inní mér. En núna er mér alveg fyrirmunað að muna hvað þetta var, sem betur fer.
Núna er allt bara svona ljómandi bjart!
|
Ég er búin að eiga frábæra helgi með frábæru fólki. Núna síðast gerði ég risasápukúlur við Garðskagavita. Það verður ekki mikið betra en það...
|
Dk hittingur á morgun á Klambratúni klukkan hálf tvö, tvö. Svo er brúðuleikhús á Kjarvalsstöðum klukkan þrjú. Ég kem með pönnsur og kakó. En þið?
|
Sólarlagið fyrir utan gluggann minn er alveg stórkostlega fallegt. Og ekki er það verra þegar fyrir innan hann er allt hreint og fínt og fólkið ljúft og gott.
|
"
ástin er rokk og ról" sungum við fjölskyldan hástöfum við morgunverðarborðið. Það var ennþá meira hressandi en kaffibollinn.