Obb bobb obb !!!!
|
Er einhver að koma frá köben í kring um páskana sem gæti tekið með sér danskt stelpuskott í fylgd?
Vill einhver skipta á íbúð við mig einhvern tíma í júlí í ca. 2-3 vikur?
Vill einhver vera memm?
|
Hvað ætti ég að taka til bragðs á mömmuhelginni sem framundan er?
|
Mér fannst rosalega gaman þegar snjóþotan fauk úr greipum mér og hátt upp í loft í morgun. Við kútveltumst svo skellihlæjandi á eftir henni þvert yfir planið hjá kennó...
|
Þetta er nú meira ruglið. Er ekki hægt að setja saman svona eins og tvo meirihluta til, áður en kjörtímabilinu líkur? Nýta alla almennilega. Leyfa öllum aðeins að taka í...
|
Ný klippt og fögur.
|
|
Mér er sama hvort það er myrkur eða bjart, nótt eða dagur; ÉG ÞOLI EKKI ÞEGAR BÆKUR SEM ÉG ÆTLA AÐ LESA Á BÓKASAFNINU ERU EKKI INNI!
|
Myrkrið er svo dimmt. Það er allt í lagi ef maður legst upp í rúm, þá breiðir það sig yfir mann og umlykur algerlega. Verndar mann og passar. En þegar maður þarf að fara út og gera eitthvað er það bara kalt og dimmt. Og þó maður reyni að halda fyrir augun og ímynda sér sólskin, smýgur það á milli fingranna og þröngvar sér inn í hugann. Eina ljósið í myrkrinu eru appelsínugul blikkljós snjómoksturstækjanna.
|
Talaði við leiðbeinandann minn í morgun og allt í einu finnst mér ég ekkert vera svo svakalega vitlaus lengur. Merkilegt...
|
|
...væri frekar til í að vera í spjót-eða kringlukasti, já og jafnvel brjálæðiskasti...
|
|
...það er ekki laust við að ég sé svolítið blönk...
|
Á ég eitthvað að segja ykkur frá?
Það er svo sem ekkert að frétta, þannig lagað. Lífið gengur bara sinn vanagang án stórra afskipta frá mér.
Ég ætla að byrja í skólanum á morgun og er ákveðin í því að hafa opinn huga og reyna líka að halda mér vakandi. Það hlýtur að vera eitthvað þarna fyrir mig og það versta sem getur gerst er að ég hætti! Eða ég fæ MA gráðu.
Hvoru tveggja getur bara reynst ágætt, já svei mér þá...
|
Þorbjörg og félagar að loknu fyrsta körfuboltamótinu.
|
...sauð mér svo egg þegar ég kom heim, en núna veit ég ekki í hverju ég á að vera. En það er víst ekkert nýtt...
|
Gleðilegt ár!
Frumburðurinn er orðinn níu ára og við búin að halda tvö partý í tilefni þess. Áramótin komu og fóru án þess að mér kæmi það eitthvað við, eða að það kæmi eitthvað við mig. Ég held að mín áramót hafi verið í ágúst.