Það er ekki mikill fyrirmyndarbragur á heimilinu þegar litla barnið fer ekki að sofa fyrr en klukkan hálf tíu, kerlingin hámar í sig nammi og karlinn er á leiðinni á barinn. Eða hvað, kannski á þetta að vera nákvæmlega svona, eða sko fyrir utan þetta með svefntíma barnsins. Kallinn fullur og kellingin feit og útbíuð í súkkulaði.
Þorbjörg er hins vegar alveg til fyrirmyndar, hún er að fara í sirkús á morgun með leikskólanum og sofnaði á mettíma. Hún heldur að það verði kannski krókódílar í sirkúsnum sem eru með voða litlar tennur og bíti í hendurnar á krökkunum. En bara laust af því að þeir eru með svo litlar tennur!