Ég er ekki dauð. Stúlkubarnið var samt alveg til í að verða munaðarleysingi, bara ef hún fengi að ráða. Mikið hlakka ég til þegar hún verður unglingur!
Annars er bara allt of mikið að gera hjá mér í þessu fríi. Ég er nebblega að undirbúa byltingu og því veitir víst ekki af. Þeir sem kunna að fara með efnavopn,sprengiefni eða miltisbrand eru hér méð beðnir um að hafa samband. Einnig vantar fólk til að sjá um kaffið.