Hva! það hefur einhver í Finnlandi álpast inn á síðuna mína og tveir í bandaríkjunum (NB með litlum staf til að mótmæla stríðspælingum búss og kó). Nú fer ég alveg að ná heimsyfirráðum. Ha,Ha, ha.....
En nú er ég leið, PROJECT X þarf að bíða fram á föstudag. Ég verð alltaf svo voðalega leið þegar fólk hættir við að gera eitthvað sem það hefur ákveðið að gera með mér. Þó svo að ég viti kannski að það sé ekkert við því að gera , t.d. ef fólk hefur lent í slysi eða eitthvað álíka, verð ég samt leið. Ekkert sár eða reið eða fúl. Bara ósköp leið.
Samt er ekkert betra ef fólk getur ekki tekið ákvarðanir og segist ætla að hringja á morgun og sjá eitthvað til. Það HATA ég.
Æi ætli það sé nokkur leið að gera mig ánægða????