Hvar eru kjólarnir ?
Ég fór í búð í dag, ætlaði að kaupa mér kjól. En nei nei, enginn kjóll. Ekki einn kjóll í heilli pæjubúð. Hvað á það að þýða?
Ég skil þetta bara þannig að annað hvort á ég að vera í gömlum kjól eða í hermannabúningi og támjóum skóm.
Þetta er ansi flókið þetta með tískuna.
Ég held ég verði bara heima.
Af hverju er ekki til einhver hátíðarbúningur á konur sem svarar til jakkafata karla ? Er það kannski dragt ?
Mér finnst dragt hallærisleg, sko.
Ég held ég verði bara heima.