Já svei mér þá, ég held að ég sé loksins farin að líta út fyrir að vera kona. Þó að manninum mínum finnist það ekki. Ég hef verið þéruð núna tvisvar með stuttu millibili í verslunum. Maður þérar hér ekki nema fullorðið og virðulegt fólk. Ég er örugglega ekki virðuleg, heldur er ég meira orðin fullorðin og það sérst meira að segja á mér. Ligga ligga lá!