Sko ég fer ekkert ofan af því að vinstri hliðin á mér er eitthvað gölluð. Nú er ég komin með risa
bólu inn í vinstra eyrað. Ja, nema einhver hafi gefið mér eyrnafíkju!
Ekker fútt í þessum krökkum, allir bara sofandi. Og þá skiptir engu hvort þau eru tvö eða fjögur. En ég ætla nú ekkert að fara að kvarta yfir því. Hins vegar ætla ég að kvarta yfir því hvað börnin mín geta verið móðursjúk stundum.
Voðalega geta börnin mín verið móðursjúk stundum. Taka svona tímabil þar sem þau þurfa stöðugt að vera hjá mér. Meira að segja þessi litli segir: "mamamama, mamamama" og horfir á mig löngunar augum þangað til ég tek hann. Stelpan vill helst ekki eiga bróðir núna, henni finnst hann taka of mikið pláss og hún vill
bara vera hjá mér.
Ég skil þau ekki, ég er ekki svo skemmtileg ! Svo eiga þau líka alveg fyrirmyndar pabba sem situr bara auðum höndum því þau vilja varla sjá hann núna. Ég hlakka til þegar þau læknast af þessari sýki og ég verð aftur frjáls ferða minna á heimilinu.
Ég er farin úr tölvunni.........