Áðan fór ég til fegrunarfræðingsins nágranna míns, til að athuga hvort hún lumaði ekki á einhverjum fegrunarsmyrslum til að lána mér. Ekki gerði hún það, en í staðin dró hún fram dunk einn mikinn og sagði hann innihalda mjög gott hreinsiduft. Aftan á dunknum stóð stórum stöfum:
TIL RENSNING AF HVIDE TRÆGULV. Með þetta fór ég, blandaði í vatn, bar á fés mér og TARA......... fegurri en nokkru sinni! Á mér er sko engin fílabeins húð heldur er ég skínandi eins og hvítt trégólf.