Sunnudagur til sælu
Svaf til tólf. Vaknaði með mikla andremmu. Burstaði tennur og byrsti mig. Fékk mér kaffi og meððí. Bjó til prinsessu úr dóttur minni og fór í fastelavnspartý. Hitti mögulega parnapíu sonar míns. það var af henni þefur. Slæmur þefur. Hver vill láta illa lyktandi 34 ára
kellingu passa barnið sitt. Ekki ég.
Kvartaði svo svolítið yfir fýlunni við nágrannana. Kom heim og gerði þetta.
En núna: Kjúklingur. Súrsætt eða karrý? Taka með, borða hér?