Það er eins gott að ég og bekkurinn minn komum ekki að alvarlegu slysi í dag. Við vorum nefnilega á skyndihjálpar námskeiði og aumingja kennarinn náði ekki einu orði af viti upp úr okkur.
Engu okkar.
Ef við hefðum hitt einhvern alvarlega slasaðan þá hefði sá sami látist skömmu eftir að við hefðum komið til sögunar. Hins vegar hefði hann fengið bjór og vínarbrauð, þúsund kossa, verið áreittur kynferðislega og líklega verið rændur í ofanálag.
En rosalega var gamal hjá okkur, við létum eins og algerir hálvitar. Ég held að það sé holt að láta eins og hálfviti. Það er allavega gaman að láta eins og hálfviti og enn þá meira skemmtilegt að gera það með hópi fólks.
Hálfvitar eru bestir.