Það er örugglega ekkert sem páskaegg getur ekki læknað. Ég er allavega búnin með u.þ.b. 300 grömm og mér líður
svo vel. Í hvert sinn sem ég fæ enhver ónot í magan, fæ ég mér bara aðeins meira og allt lagast!
Af hverju veita fugfélög ekki þeim foreldrum sem eiga stiltustu börnin í hverri flugferð, verðlaun? Ef þau myndu veita verðlaun, hefði ég fengið þau í dag og líka um daginn þegar ég flaug til íslands. Kannski hefði ég fengið páskaegg. En ég fer bara í Tiger og kaupi mér verðlaunapeninga ( það er hægt að fá 5 plast-gullpeninga á tíkall) og geng svo með þá þangað til ég man ekki hvernig það er að eiga þæg börn.
Ókey, páskaegg laga ekki slæma sjónvarpsdagskrá. Eru það bara óskráð lög að allt eigi að vera leiðinlegt á páskum? Ja, sko fyrir utan páskaeggin þau eru alltaf skemmtileg.
bæ