Þá er ég búin að vera í Póllandi.
Ég held að ég fari ekkert meira til útlanda næstu þrjár vikurnar eða svo.
Gdansk er ekki bara skipasmíðaborg. Hún er bara eins og venjulegar borgir, þar sem býr fólk. Það lítur bara út eins og við, meira að segja sá ég fullt af litlum skeitarastrákum sem voru allveg eins og strákarnir hérna. Þeir töluðu bara pólsku, það var eina sem var öðruvísi.
Ég hélt samt að
allir þarna væru voða óhamingjusamir og gráir og leiðir yfir að vera bara alltaf að vinna í skipasmíðastöð!
Ein voða vitlaus eitthvað.