Það eru allir voða spenntir að vera með í uppvöskunarmyndinni, sem átti fyrst að verða sería en verður það nú ekki. Bara mynd. Allir viðmælendur hafa sagt já við að vera með og þeir hafa líka allir þurft að segja mér eitthvað frá hvernig þeir vaska upp, þegar ég hef falast eftir þeim. Tökur hefjast á fimmtudag, gaman gaman.
En nú ætla ég að hafa sjónvarpskvöld og kannski þrífa ísskápinn svona með öðru auganu!