Þetta er allra versta kosningarvaka sem ég hef verið á. Hér eru allir sofandi nema ég og klukkan ekki nema rétt rúmlega hálf tólf !
Ég er barasta við tölvuna heima hjá mér, nennti ómögulega í Jónshús. Það er nefnilega nótt úti og ekki vil ég vera úti í henni, ekki undir neinum kringumstæðum.
Ætli ég reyni ekki að hanga uppi þar til fyrstu tölur eru komnar. Magnað hvað við hér í danmörku erum fljót að klára daginn. Það er enn kvöld á Íslandi en nóttin komin hingað !