Hver hefði trúað þessu. Eiginmaðurinn minn sem enginn vill kaupa er kominn inn í Statens teaterskole í leikmyndahönnun. Ha, ha ha þið vilduð hann ekki svo þið getið sjálfum ykkur um kennt!
Hí á ykkur, ég á hann.
En kannski kemur það ekkert á óvart, hann er ansi klár. Hins vegar kemur meira á óvart hvað allir eru æstir í þessa uppvöskunarmynd. Leiðbeinendurnir okkar eru svo æstir yfir þessu að helst vilja þeir vera með í verkinu. Við höfum verið að fá fyrirspurnir frá allskonar fólki sem vill vera með. Svo við erum bara í voða góðum gír. Nema kannski helst ég , mér finnst vera svolítið stressandi að öllum skuli finnast þetta svona bríllíant hugmynd. Hvað ef allt klikkar?