Kaupmannahöfn er falleg kl: 4:30 á fimmtudagsmorgni, jafnvel þegar maður er ófullur. Þá vaknaði ég nefnilega til að fara að taka upp Ágúst nokkurn sem vaskar upp á þessum tíma. Undarlegt hverju fólk tekur upp á. Ekki veit ég þó hvort okkar er undarlegri ég eða Ágúst. En sá allra undarlegasti er án efa eiginmaður minn. Hann vaknaði nefnilega líka. Til að sjá hvernig augun í mér líta út kl. 4:30. Þegar hann er vakandi á þessum eru þau nefnilega alltaf lokuð, einstöku sinnum kannski rauðleit og fljótandi!
Núna er ég að komast á ról eftir tvo lítra af kaffi og hálfan poka af bruðum. Áhugavert með eindæmum.