Í þrumum og eldingum lagði ég af stað í morgun á hjóli með kvikmyndatökuvél, ljós og drasl sem maður notar við svona athafnir. Mér lá við druknun í mestu hviðunum en komst á áfangastað. Reyndi svo að leita mér að skjóli á meðan ég beið eftir kollegum mínum sem tóku strætó á tökustað. Það tókst ekki svo ég hékk hundblaut undir tré í korter, skálfandi úr kulda í hitanum. Tók svo fyrsta viðtalið rassblaut og rennblaut og hundfúl í ofanálag.
þetta gekk samt ágætlega en á morgun panta ég sól !