Ætli það standi eitthvað um lyftulaus fimm hæða hús í mannréttindasáttmála sameinuðuþjóðana? Ég var að hjálpa honum Einari Óla vini minum að flytja í gær. Hann getur bara verið fegin að hann var að flytja úr þessarri íbúð, annars yrði hann að dúsa þar alla sína daga. Ég myndi alla vega ekki hjálpa honum að flytja þaðan aftur. Þetta er hreint helvíti svona daginn eftir. Harðsperrurnar eru að drepa mig.
En hvað voru þeir MIkael Torfason og Dr. Gunni að bauka á Holmbladsgade kl. 10:30 í morgun. Ætli þeir séu byrjaðir saman???