Af því að ég fer aldrei í bíó og er að læra að búa til kvikar myndir fór ég á bókasafnið og tók þrjár myndir sem ég ætla að horfa á sem fyrst. Er þegar búin með eina. Einhverja Afganistamynd, mest af því að ég er að lesa Afganistabók -Bóksalinn í Kabúl, Afganista þema hjá mér. Hún var ekkert sérlega skemmtileg, en voða falleg á að horfa. Svo tók ég eina franska hommamynd og dogma númer fjögur - The king is alive. Ég er nebblega bara búin að sjá dönsku dogmurnar.
Ég held ég sofi betur í nótt en allar nætur hingað til. Ég er
svo menningarleg.
Og svo er maðurinn minn í svo góðu sambandi við sjálfan sig. Fer í leikfimi og tjáningu og árunudd í skólanum á hverjum morgni núna. Hann er allur orðinn voða mjúkur, bæði að utan og innan.
góðar stundir