Gærkvöldið fór bara í að hita kakó fyrir Sigga. Djonní Kass vinur hans lést í gær og ég þurfti að veita honum áfallahjálp. Kakó og teppi.
En Póllands túrinn var mjög fínn. Við Ole gerðum okkar til að reyna að minnka áfengismagnið um borð ( auðvita bara eftir tökur) en það sá ekki högg á vatni. Ég talaði við Pjotr nokkurn, hann spila á trommur í skipsbandinu og virtist bara vera ósköp venjulegur pólverji en þegar ég horfði á hann frá hlið sá ég að hann var með síðasta hárið að aftan. Og hann var ekkert að djóka með það neitt, greinilega búin að safna þessu frá því snemma á níunda áratug síustu aldar. Nú okkur var hent út úr veslanamiðstöðinni sem við ætluðum að taka upp stóran hluta myndarinnar þannig að við verðum að breyta handritinu okkar. Leikstjórinn fór hamförum í túristaleik, keypti og keypti og vann til verðlauna í öllum helstu keppnum sam fram fóru um borð í bátnum. Nema þrístökkinu, ég vann í því og fékk nokkrar skrámur í kaupbæti. Enda mjög hörð keppni. Og svona eitthvað bara!