Það fer alveg óstjórnlega í taugarnar á mér að hann Láki hafi ekki farið aftur heim til Snjáka og Snjáku. Hvers vegna voru þeirra tilfinningar ekki teknar inn í myndina. það þarf enginn að segja mér að þau hefðu ekki elskað hann eins og hann var oðrinn þarna í restina. Hann var nú einu sinni einkasonur þeirra. Og að enda bókina á að nú hafi Láki eignast systur og bróður og mömmu og pabba. Helvítis kjaftæði bara, hann átti foreldra fyrir og hver veit nema að hann hafi eignast einhver systkini á meðan hann dvaldist uppi á jörðinni þar sem mennirnir og dýrin búa.
Hvers vegna hefur maður ekkert heyst meira af Láka? Jú, það er alveg ljóst að hann hefur aldrei meikað það í mannheimum. Alltaf verið utangarðs og örugglega leiðst út í drykkju og jafnvel eiturlyf.