Í gær drakk ég ótæpilega af bjór, líkjör, víni og vodka. Það var ekki nema viskíið sem ég dreypti tæpilega á. Enda stök hófmanneskja þegar kemur að því. En á meðan ég var að hella þessu í mig, þá fannst mér rétt að reykja svolítið líka. Og þar lenti ég nú heldur en ekki í vandræðum. Ég er nefnilega hætt að reykja. Nú , það var bara ekkert annað að gera en að tefla bara á það tæpasta og kveikja sér í og hvað haldiði ? Það bara hefur ekki haft nein eftirköst í dag. Langar bara ekkert að reykja. Svei mér ef ég er ekki bara hætt í alvörunni. Djöfulli gott.
Annars er veður milt og tíðin góð.