Hvaða lofttegundir myndast aftur við bruna viðar?
kolmónoxíð? Ég held allavega að það sé eitthvað sórhættulegt lungnum.
Það er nefnilega þannig að ég hjóla í skólann. Sem er voða hressandi á köldum haustmorgnum( fátt jafn gott og ískalt loft í lungun), nema þegar ég hjóla í gegnum snobbhænsnahverfið. Þeim (hænsnunum) finnst nefnilega svo notalegt að kveikja upp í arninum á morgnana. Svo kem ég hjólandi með lungun full af morgunlofti og inn í sóthelvítið og bæng! Lungun herpast saman eins og kynköld freðpíka.
þetta er stundum svo slæmt að ég get ekkert reykt fyrr en klukkan að verða tíu.