Hversvegna í andsk.... þarf hún dóttir mín að vera svona lík mömmu sinni? Nú liggur hún hér , veik á fimmta degi og tekur engum sönsum.
hún:"Mamma ég er með svo mikinn hósta, ég er að deyja"
ég: "fáðu þér þá hóstasaft"
hún: "nei, það er vont"
ég: "á ég að hita handa þér te'"
hún: "NEI"
ég: "viltu hálstöflu'"
hún: "Nei"
ég: "hvað viltu þá gera?
hún. "ég get ekkert gert, ég er með svo mikinn hósta!"
ég: viltu þá ekki hóstasaft...............
.....svona gengur dagurinn, endalaust í hring.