Klukkan er ekki nema 9:26 á þessum afmælisdegi og nú þegar er ég búin að fá fullt af gjöfum; pils, hitabrúsa, regngalla, barbie dúkku, æðislegt vísukorn, skrítna húfu og kossa. En það er ekki nóg. Mikill vill meira og ég er mikill. Ég er þrjátíu og tveggja ára.