Meiriháttar mennigarreisa í gærkvöldi hjá okkur hjónum. Rándýra nýja pössunarpían passaði örg börn okkar. Fyrst fórum við í leikhúsið og svo á tónleika í Stegade. Í millitíðinni álpuðumst við alveg óvart inn á einhvern upplestur, en öllu má nú ofgera þannig að við hörfuðum þaðan út eins fljótt og auðið var.
Í kvöld verður partígeim heima hjá okkur, veit ekki alveg hvað SIggi hefur hugsað sér að gera við börnin, en hann finnur út úr því.
Já, svo í gær þegar ég kom heim, kom aðeins á undan Sigga, hann fór í sjoppuna, komu Nágrannarnir og báðu mig á kíkja á einhvern poka hjá þeim, voða duló eitthvað. Heima hjá þeim var risastór rauður taupoki sem þau sýndu mér og ég sagði si svona:"hva, er Palli í pokanum"? og viti menn, Palli var í pokanum. Kominn alla leið frá Hollandi aldeilis úforvarendes!!