Þá er það klárt að hún Þorbjörg Salka dóttir mín er fyndnasta manneskja sem ég þekki. Og hún er bara rétt að byrja að vera fyndin þar sem hún er rétt óorðin fimm ára.
Í dag fórum við mæðgur í Amager center til að kaupa prumpuslím, vegna þess að jólasveinarnir hlíða ekki bænum hennar um að færa henni slíkt í skóinn. Áður en inn var komið leiddi ég hana í allan sannleika um það að ég vildi ekki hafa neitt helvítis rell og suð, við værum bara að fara að kaupa þetta slím og ég nennti ekki að heyra neitt "
máégfá....." .
Svo förum við í gengum svona sjálfvirka rafmagnshringhurð, og þegar inn var komið segir sú stutta: " mamma, má ég fá ís?" Ég stífnaði alveg upp, herti takið á hendinni sem ég hélt í og var að snúa við til að fara aftur út þegar hún sagði. " ég var bara að grínast"
Ég dó úr hlátri og sprakk úr stolti.