Frumsýning á
Marias Middag í nýja sendiráðinu á morgun klukkan fjögur. Og þá fer þetta alveg að vera búið og það versta við það er að við þurfum að fara að taka til hendinni og ganga til, eins og hún Þorbjörg mín segir (
ganga frá/taka
til). Hér stendur ekki steinn yfir steini, allt í rusli og svo er jóladótið fljótandi efst á ruslahaugnum. Mjög hátíðlegt.
Annars var krap á jörðu í morgum og Þorbjörg þursti fram úr og svo út og hrópaði uppyfir sig og vakti grannana: " Snjór!" Svo hamaðist hún við að safna þessu litla sem var að hafa og gera úr haug. Það er kominn vetur.