Fékk mér lítinn strák að passa í gærkvöldi. Hélt að ég myndi eitthvað þurfa að eiga við hann, skipta á eða gefa pela; jafnvel ganga um gólf með hann í óstöðvandi gráti.
En það þurfti nú ekki mikið að hafa fyrir honum. Gaf honum einn pela hálftíma eftir að hann kom og lagði hann svo inn í rúm, þar sem hann bara sofnaði. Þurfti ekki einu sinni að fara og athuga hvort hann andaði, ég heyrði í honum alla leið inn í stofu. Svo ég eyddi kvöldinu í bíómyndagláp og bókalestur.
Í dag er ráðgert að fara á skauta. Við ÞS ætlum að draga nágrannakonuna með okkur á Blågårdsplads og skauta þar eins og við lifandi getum.