Ég er voða glöð í dag, enda búin að finna lokið á hjartaboxið sem ég held að geymi hamingjuna. Börnin orðin frísk og farin í vinnuna, sólin skín og skín. Búin að fara í smá göngutúr með Óla og Rafnari og ég fékk meira að segna loksins rauðu buxurnar sem mig er búið að langa í í mörg ár. Það er engin furða að ég sé hamingjusöm.
Er kannski ekki alveg nógu próduktíf, en það kemur, það kemur. Nú þarf ég bara að kaupa nýrnabaunir fyrir kvöldmatarklúbbin í kvöld en ég er samt ennþá með ljótasta hárið. En hver þarf svo sem að hafa flott hár þegar hann á rauðar buxur?