Ég var bara komin með algert ógeð á þessu klinkblogát drasli. Nú er komi nýtt sem ætti eitthvað að virka. Bætti lika inn fólkinu mínu á hliðarlínuna.
Helstu fréttir eru að það er búið að fjárfesta í kojum sem virðast bara virka vel. Allavega sváfu allir í sínu rúmi í nótt, misvært þó.
ÞS fór í pæjuleiðangur með mömmu sinni á útsölu og hún fékk að velja alveg sjálf hvað hún keypti. Hún valdi sér hipphoppara galla einhvern, buxur með hengerøv, og ég veit ekki hvað og hvað og toppaði gallan með derhúfu sem er oftast með derið út á hlið. Fór svo alsæl að sofa og það síðasta sem hún sagði það kvöldi, með réttri fingrastöðu (vísifingur og littlifingur upp í loft ) og allt, var: "rock on, mamma ! "
kúl krakki men!