Mér finnst leiðinlegt; Að ganga frá Þvotti inn í skápa, opna nýjan kaffipakka og setja kaffi í baukinn og fara á klósettið.
Ég er orðin svona "vakna klukkan sex" týpa. Fer mér voða vel finnst mér. Mig dauðlangar að segja öllum sem ég sé frá því. Og ég var ekkert að vakna svona snemma til að fara í vinnuna, ónei, löngu hætt svoleiðis rugli. Bara vakna til að vakna. Skemmtilegt.