Þá er búð að prufukeyra meiköppið fyrir fastelán ( það er sambland af bolludegi og öskudegi). Þorbjörg ætlar að vera fiðrildi og vill að Arnaldur sé drekafluga. Hmmm, veit ekki alveg hvernig ég geri það.
Ég, hins vegar, ætla að vera rithöfundur á farstelán.
Í kvöld er hjónunum boðið í galaveislu hér á garði. Það er sko fyrir alla sem eru aktífir. VIð erum jú bæði í einhverjum nefndum og ráðum og þess vegna er okkur boðið. Veit ekki alveg samt.
Siggi er að pæla í að senda mig bara eina ef við fáum ekki pössun, til að spara matarpening. Ég borða víst mest hér á heimilinu. Veit ekki samt............