Það er ekkert að gerast hjá mér þessa dagana. Kem nákvæmlega engu í verk og á fullt í fangi með bara að vera. Er samt alveg að hugsa fullt fullt og bíð spennt eftir að hugsanirnar breytist í gínur á húsþökum!! Eða réttara sagt breytist í gjörðir. Og þá er víst eins gott að vera tilbúinn þvi ég á von á meiriháttar flóði eftir svona langan doða.
Fór í dag út í Kristjaníu að hjálpa til að undirbúa þorrablótið en var kölluð þaðan eftir skamma stund af henni Lisbethu. AG var nebblega orðinn alvöru veikur og er enn.
Svo ég þarf ekkert að hafa af því áhyggjur að gera neitt af viti á morgun, get það nú ekki mikið með veikan strák og get heldur ekki farið að blóta í Stínu. Ætli ég sé þá ekki bara súkkulaði á morgun.