Það er voða þreitandi að skrifa glæpafréttir heilan dag. Okkur hjónum fannst vera besta ráðið að láta kartún nettvörk svæfa börnin, það var einhvernvegin óhugsandi að leggja þau vakandi í rúmið og lesa fyrir þau. Siggi hetja fór nú samt inn með AG og er enn að berjast við hann. ÞS sefur hins vegar vært fyrir framan imbakassan og litla lánsbarnið vært í mínu rúmi. Ég vildi að ég væri þar líka en í einhverju stundarbrjálæði setti ég í þvottavél og verð nú í refsingarskyni að bíða eftir að hún klári.