Eyddi gærdeginum í þögul mótmæli. Ég er ekki viss um að þau hafi nokkur áhrif, en í lok dags var ég búin að þegja nógu lengi til að geta sagt í hverju mótmælin fólust. Vona bara að það verði tekið mark á þeim.
Annars er AG enn veikur og þúsund sinnum pirraðari en í gær. Það eina sem getur róað hann er skrúfbitasettið hans Sigga þannig að nú situr hann með það á gólfinu. Ekki segja Sigga það samt, það má nefnilega alls ekki leika með það, ekki fyrir nokkra muni.
Læknisferð og kjúklingur á döfinni. Segiði svo að maður sé ekki með plön!