Ég er með algjört ógeð á valentínusardegi. Finnst þessi markaðsetning hafa tekist allt of vel og vald mammons endurspeglast í endalausum auglýsingum. Nú á maður að gefa ástinni síma, bíl og íbúð auk blómanna, súkkulaðsins og undirfatanna ( sem maður passar svo örugglega ekkert í þegar maður er búinn með súkkulaðið). Já, sönn ást á bara einn dag og ef þú getur ekki ( eða vilt ekki ) gefa ástinni inni nýjan síma og sjónvarp og tvo bílfarma af hjartalöguðu súkkulaði þýðir það bara að þú elskar ekki nóg.
Á valentínusardag ætla ég að ég að éta mín hjörtu, af því ég elska svo heitt.
Hér verða á boðstólum steikt svínahjörtu í brúnni sósu með kartöglum og létt soðnu brokkólíi. Bara í mótmælaskyni.