Ég fékk smá í magann þegar ég kom með fiðrildið í leikskólann í morgunn. Við okkur blöstu fjórar "hard kor" prinsessur, með hárkollur, kórónur og bleikan varalit. Í smá stund hélt ég að fiðrildið vildi líka vera prinsessa og að dagurinn væri ónýtur.
En þá setti það bara á sig vængina, alsæl, sagði eitthvað á fiðrildamáli og var svo rokið.
En áður en við lögðum af stað, reyndar þegar við vorum að borða himneskan morgunmat sem Siggi útbjó, voru uppi miklar samræður um það af hverju Siggi vildi ekki bara senda skilaboð í skólan sinn þess efnis að hann kæmist því miður ekki í dag, af því að hann væri að faraí fastelavnsfest í leikskólanum. Henni fannst hann vera frekar leiðinlegur að vilja það ekki.