Ég tek þetta aftur, hann er duglegur að hjálpa. Sérstaklega við það sem hann hefur áhuga á. Hverjum finnst svo sem gaman að þvo þvott? Núna er hann að endurraða í hnífaparaskúffunni, eitthvað sem er búið að liggja lengi fyrir og áðan sópaði hann moldinni sem kom undan skóm systur hans út um allt svo hún væri ekki í haugum á ganginum.