Konan sem er alltaf heima að gæta barna og bús; Ég, er að fara út núna þrjá daga í röð. Ég er alveg strax komin með " ég er aldrei heima hjá börnunum mínum" komplex. Sem er náttúrulega bara búllshitt og kjaftæði. Í gær var mér boðið í matarboð sem ég þáði, í kvöld er ég að fara út að borða með Einari Óla og Herði og á morgun í leikhús með Sigga. Og á þorrablót næstu helgi! Hvar endar þetta útstáelsi eiginlega??