Nú er ég búin að fatta af hverju ég finn mig ekki almennilega í lífinu. Ég er nefnileg, og á að vera, balletdansmær. Og af því að ég fattaði þetta bara í gærkveldi og af því að ég hef aldrei á ævinni dansað ballet held ég að frami minn í balletheiminum verði aldrei að neinu. Svo er ég líka örugglega orðin of gömul og komin með gigt í vinstra hné þannig að ég gæti aldrei orðið atvinnudansari.
Héðan í frá hugsa ég allt mitt líf út frá því að ég sé balletdansmær á eftirlaunum.
Hvað ætli dansarar fari að gera eftir að ferlinum líkur?