Stundum er eins og ég sé geðklofa. Aðra stundina tuða ég yfir öllum leikföngum barnana, sem þau bæ ðe vei leika mjög sjaldan með, og hina stundina rýk ég í bæinn með þau að kaupa dót. Nú vorum við mæðgurnar að koma inn úr dyrunnum með Shellys leikvöll og eitthvað álíka fyrir AG. Eftir tvo daga verður helmingurinn kominn undir sófa, einn fjórði hluti brotinn og restin á botninn á leikfangakassanum. En mikið verður gaman þangað til.....