Ætli sé ekki kominn tími á að fjárfesta í hrukkukremi einhverskonar, eða öllu heldur andhrukkukremi. Alla vega finnst mér ég ekki þurfa að bæta á mig fleiri hrukkum, allt í einu er bara komið alveg hellingur af þeim án nokkurs fyrirvara eða viðvaranna. Maður fer að halda að þetta með fertugsaldurinn sé satt!