Þá er hann lagður af stað til Berlínar minn ektamaður. Verður fram á sunnudag, þetta er nokkurs konar æfing í grasekkjustandi því eftir tvær vikur fer hann aftur (ekki samt til Berlínar) og verður tveim dögum lengur. Það er eins víst að húsið fyllist af vonbiðlum, þeir eru víst voða lunknir við ekkjurnar, alla vega í skáldsögum. Kannski fæ ég Palla í kvöld og það er nú ekki amalegt. Annars held ég að það komi ekki til með að væsa um mig, inn um lúguna var að koma, sjóðheit úr prentun, sjálfsævisaga Lars Larsesn
rúmfatalagerskonungs alheimsins.