Ég vildi að morguninn hefði verið draumur.
Það var skítur út um allt! AG náði af sér bleiunni rétt á meðan ég fór inn að klæða mig og viti menn, hann skeit allt út. ÞS galaði á mig að hann væri að pissa og kúka á gólfið og ég rauk til á brókinni einni fata og náði að bjarga málunum áður en í óefni komst. Að ég hélt. Svo þegar við vorum á leiðinni út, fann ég einhverja skítalyt af syninum. Þá hafði hann falið tvo kúka undir bíl svo hann gæti velt sér upp úr þeim seinna, eða eitthvað. Nú, þá þurfti ég að skipta um föt á honum og leita að restinni af skítnum og þvo hann upp og þessi ósköp enduðu með því að við rétt náðum á réttum tíma í leikskólann hennar Þorbjargar.