Sigginn minn er nú stundum svolítið skemmtilega sjálfhverfur og blindur á umhverfi sitt. Ég hef nú í fimm og hálf ár, eða síðan ÞS fæddist, verið að reyna sannfæra hann um hve mikilvægt það er fyrir börn að borða staðgóðan morgunverð. Ég læt meira að segja oní mig hafragraut því til áréttingar. Hann segist í það minsta vera sammála mér og setur sykur út á kornflexið sitt í laumi fyrir krökkunum. En krakkar geta verið mjög áhrifagjarnir eins og margir vita.
Nú, í morgun þegar trekvarturinn ( ég og börnin) sátum og átum okkar hafra, gaf hann frá sér mergjaða vellíðunarstunu og sagði með áherslu:
"Ristað brauð með osti ER best í heimi".
Fyndinn kall!