Í dag flytur besta vinkona ÞS til Ísafjarðar. Einhvernvegin er það miklu lengra en til Reykjavíkur. Ofboðslega eigum við eftir að sakna hennar mikið. Þetta er líka í annað sinn sem vinkona flytur frá DK og svo í október flytur sú þriðja. Rosalega erfitt fyrir litlar skóður að skilja að allt sé í heiminum hverfullt.
En við erum að fara í sumarfrí. Tvær og hálf vika, og við vitum eiginlega ekkert hvað við ætlum að gera. Byrjum á því að fara út úr bænum í dag og yfir helgina og svo bara eitthvað. Siggi er búinn að lofa mér besta fríi sögunnar og ég ætla bara að taka hann á orðinu og hafa það svoleiðis. Í kvöld ætlum við að éta sússí uppi í sveitinni ( eða öllu heldur úthverfinu) þ.e.allir nema Siggi, hann ætlar að grilla. En það verður alveg rosalega gaman. Það held ég og sei sei......