Ferð dagsins var farin út á strönd í rigningu og trekki. Með okkurí för slóst Gunnar SigguLísuson sem reyndist hinn mesti veiðimaður. Afli dagsins er kominn ofan í karöflu til álsins Gunnars ( sem heitir í höfuðið á veiðimanninum). ÞS er himinglöð með álana sína, reyndar held ég að þessi kvikindi heiti
glærorm upp á dönsku, en við köllum þá ála og þeir eru sko fyrstu gæludýrin hennar og þess vegna er hún svona glöð. Brúðkaupsafmælismaturinn heppnaðist afbragðs vel, smokkfiskur og freiðivín og svo kalkúnasteik og búðingur í eftirmat. Hefði líklega átt að skella búðingnum í ofnin í smá stund og freista þess að gera "krem brúlei", en það verður bara næst.
Nú erum við hjónin farin á kojuna og allir eru velkomnir þangað með okkur sem vilja!