Ég er svo mikill afglapi stundum. Er í óða önn að baka fjórfalda uppskrift af beibírúþþ í allt of lítilli hrærivélarskál. En ég gleymdi að skilja rauðurnar frá hvítunum, svo á sunnudag verður í boði ný tegund af beibírúþþ í jónshúsi. Annars keypti ég mér bombukjól í dag, á ekki von á öðru en að Siggi verði alsæll með mig í honum.